11.8.2009 | 23:14
Kópaþrek verður haldið 18.-20. september 2009
Skíðadeild Breiðabliks hefur haldið Kópaþrek á hverju hausti frá árinu 2004. Kópaþrek eru æfingabúðir fyrir ungmenni sem æfa skíði á aldrinum 13-16 ára (alpagreinum og skíðagöngu) og er haldið í skíðaskála deildarinnar í Bláfjöllum og á íþróttasvæði Breiðabliks, Smáranum.
Helstu markmið Kópaþreks eru þessi:
- styrkja félagsleg tengsl unglinga í aldurshópnum 13-16 ára
- minnka brottfall þessa aldurshóps í skíðaíþróttinni
- vinna við og sigrast á þrautum sem byggja á samvinnu og hópastarfi
- sýna fram á sannanlegan árangur af æfingum milli ára með þrekprófi.
Næsta Kópaþrek verður haldið helgina 18.-20. september nk. þar sem margt verður um að vera að venju, æfingar, fræðsla og skemmtun. Skíðafélögum er velkomið að senda fararstjóra með þátttakendum sínum.
Þátttökugjaldið er 15.000 krónur og í gjaldinu er allt innifalið, s.s. gisting, fullt fæði, fræðsla og óvissuferð. Með ferðum frá Ísafirði/Akureyri/Egilsstöðum er gjaldið 18.000 kr.
Þátttökugjaldið skal greiða inn á reikning skíðadeildar Breiðabliks: 0130-05-112373, kt. 550483-0259. Mikilvægt er að nafn barns komi fram í tilvísun.
Við hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst og í síðasta lagi 14. september nk., hjá Gísla Gíslasyni á netfanginu: bsmidjan@simnet.is. Gefa þarf upp nafn barns, kennitölu, heimilisfang og félag. Auk þess þarf að gefa upp nafn og símanúmer foreldra.
Með bestu kveðju
Kópaþreksnefnd
Um bloggið
Kópaþrek
Tenglar
Mínir tenglar
Úrslit
- Úrslit Kópaþreks 2007 Úrslit í 3000m hlaupi, kassahoppi og langstökki án atr.
- Úrslit Kópaþreks 2006 Úrslit í 3000m hlaupi, kassahoppi og langstökki án atr.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað er meint með verði 18 þ. utan af landi? Ekki er flugfar inn í því?
Júlía (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 16:25
Verðið 18.000 kr. er með ferðum utan af landi, annað hvort rúta eða flug. Það verður ákveðið þegar nær dregur og þátttaka liggur betur fyrir.
Skíðadeild Breiðabliks, 19.8.2009 kl. 12:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.